top of page

AÐ FANGA FRELSIÐ

TÓNLEIKAR UM SKÖPUNARKRAFT Í FRELSISSVIPTINGU

NORÐURLJÓSASAL HÖRPU
(SÍGILDIR SUNNUDAGAR)
22. ÁGÚST 2022

Kammerhópurinn Cauda Collective, í samstarfi við Ingibjörgu Friðriksdóttur tónskáld, veltir því fyrir sér hvað verður um sköpunarkraftinn í frelsissviptingu og hvernig listamenn hafa í gegnum tíðina skapað frelsi fyrir sköpunarþörf sína í einhvers konar hliðarveruleika á meðan þeir sátu fangavist.
Á þessum tónleikum verða flutt ný og gömul verk sem öll tengjast föngum og frelsi: Kvartett um endalok tímans eftir Olivier Messiaen, sem var saminn og frumfluttur í fangabúðum nasista í Görlitz árið 1941; hluti úr verkinu Coming Together eftir Frederic Rzewski sem byggt er á texta Sam Melville, fanga og eins aðal skipuleggjanda uppreisnarinnar í Attica fangelsinu árið 1971; og frumflutt verður nýtt verk eftir Ingibjörgu Friðriksdóttur sem byggir á bréfaskriftum bandarísks hermanns í síðari heimsstyrjöld.

EFNISSKRÁ:

Frederic Rzewski (1938-2021): Coming Together (1971)
Attica

Ingibjörg Friðriksdóttir (1989-): With All My Love, Art (2021) Frumflutningur

Olivier Messiaen (1908-1992): Kvartett fyrir endalok tímans (1941)
Söngur morgunfuglanna
Söngur fyrir engilinn, sem tilkynnir endalok tímans
Hyldýpi fuglanna
Millispil
Lofsöngur til eilífðar Jesú
Ofsafenginn dans fyrir lúðrana sjö
Regnbogaglitúði fyrir engilinn sem boðar endalok tímans
Lofsöngur til ódauðleika Jesú

Tónleikarnir eru styrktir úr starfslaunasjóði listamanna og Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.

LL_logo_blk_screen_edited.png

ÞÁTTAKENDUR:

Grímur Helgason, klarinett

Ingibjörg Friðriksdóttir, söngur

Kirsten Brehmer, lestur

Jane Ade Sutarjo, píanó

Sigrún Harðardóttir, fiðla

Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló

bottom of page